Lífid og tilveran hjá Rakel í Danaveldi....

13.08.2008 07:17:54 / rakelosk

Nýjar myndir á myndasíðunni minni :)

Sææææææææællllllllllllllllll hvað ég er dugleg, búin að láta tvö ný almbúm á myndasíðuna mína, frá gæsunni hennar Þórunnar vinkonu og frá verslunarmannarhelginni :)

Erna kom semsagt til mín um versló, og þetta var bara æðislega vel heppnað. Ég, Helga og Haffi skipulögðum sjálfann daginn og kvöldið.........viti menn þetta var bara snilld, hoppukastali, poppvél, blakmót og svo bara bara gleði gleði fram eftir morgni má maður segja :)

En Erna kom semsagt kl 23 á föstudagskveldinu, við brunuðum heim, skiftum um föt og hjóluðum svo í bæinn kl 24 :d Hjóluðum heim til Loga, þar sátu Bjarki og Jói...... Logi og Jói eru strákar sem við hittum á Hróaskeldu, eflaust eru það strákarnir sem þið kannist ekki við góða fjölskylda og vinir á Íslandi ;) Svo var bara hjólað á bar í bænum og svo var hjólað heim.........haldiði að það sé dugnaður á fólki sem á ekki pening hehehhe, þá er hjólið yndislegt ;)

Svo var vaknað daginn eftir með smááá þynnkuskratta. En hann var rekinn þegar að blakmótið byrjaði, með einum afréttara :) Eftir blakmótið ákvað ég og Erna að skora á strákana í skallatennis hehehehheheheh.......... við skiftum í 2 lið, og ég og Erna vorum saman í liði, það endaði með því að við unnum næstum því alla leikina muhahahhaha, alger snilld.

Um kveldið var grillað, sungið og haldin lítil útihátíð :haha: Meira að segja komu bæjarrotturnar Fannar og Pétur ásamt Jóa Inga kút. Og auðvitað endaði kvöldið með að við sváfum öll heima hjá okkur ;) Ég og Erna í rúminu, Fannar og Bjarki á vindsænginni og Jói og Pétur í sófanum........ alger snilld :)

Helgarnar eru semsagt þétt bókaðar.......... Fór í afmæli hjá Gígju seinustu helgi, sem heppnaðist mjööög vel. Ég var kokkurinn í ammælinu, gerði allann matinn heheheh. Svo var endað í bænum!!!! Daginn eftir var svo vaknað og farið á festival, svona weekend festival. Við keyptum okkur bara miða á laugardeginum, af því að Sigurrós var að spila. Ég skal bara segja ykkur að þessir tónleikar voru svooooo yndislegir.... ÉG ELSKA SIGURRÓS ;)

Annars er ég byrjuð í praktik, sem ég er mjög hamingjusöm með :) Reyndar erfitt að venja sig á það að vera að vinna fram eftir kveldi. Er að fara í vinnuna núna kl 13 og kem heim svona 23 í kvöld :) Svo er ég mætt afur kl 8 í fyrramálið...en er svo í fríi til sunnudags. Þetta er rosalega gefandi vinna, er mjöööög sátt!!!!

Jæja ætla að hætta þessu væli................Reyndar gleimdi ég að segja ykkur frænkunum að ég er að koma til íslands viiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.......... kem 25.september til 4.oktober. Kem semsagt í brúðkaupið elsku fallega frænka mín ;)

Lifiði öll heil og lukkuleg...........knus Rakel

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 10:12:05 / rakelosk

Hehe ég fæ verðlaun fyrir lélegasta bloggara ever :)

En samt sem áður ákvað ég aðeins að kjafta núna..........

Ég er búin að vera í sumarfríi núna í ágætlega langann tíma, er reyndar að klippa og svona......... þannig að það er engin aföskun að ég sé ekki að blogga, einfalt svar 
"ég nenni því ekki" ég er með facebook og það finst mér nokkuð gaman ;)

En annars er allt gott að frétta hér frá baunaveldi, er búin að njóta sumarsins mjög vel. Reyndar er ég ekki búin að fara neitt nema á Roskilde, djöfulsins snilld var það!!!! Ég elska Roskilde, ætla aldrei að hætta að fara þangað, ef ég kem með krakka einn daginn þá hendi ég honum til íslands á meðan muhahahhaha........

Annars eru mjööög margir óléttir í kringum mig, meðal annars Erla Súsanna sætasta vinkona mín, ég gæti talið lengi upp, en ætla að sleppa því!!!

Ég man ekki hvort að ég sé búin að segja ykkur, að ég er að fara í praktik/vettfangsnám í hálft ár, með social belastede börn.....sem er hmmm svona börn sem geta ekki verið heima hjá foreldrum sínum...... ég verð í húsi sem eru 8 börn, og það er heimilið þeirra. Þar að segja verð ég að vinna vaktavinnu, þetta er bara eins og að vera inn á heimili með 8 börn. Verð að vinna mánudaga frá 13 til 22, fríi alla þriðjudaga, vinn á miðvikud. frá 13 til 22, fimmtudögum 9 til 14, frí alla föst og laug og að vinna anna hvern sunnudag. Phuha þetta var löng ræða.......... 

Annar er ég búin að opna myndasíðuna mína aftur (hér til vinstri) , fyrir þá sem geta ekki skoðað myndir á facebook. Ég ætla að reyna að vera dugleg að setja inn myndir, en lofa engu með bloggið :) 

Verslunarmannarhelgin er í nánd............. og ég verð nú bara að segja að ég er ánægð að vera ekki á íslandi!!!!!!!! Af því að yndislega Erna mín er að koma til mín á föstudaginn, elska hvað hún er dugleg að koma hiihii........... vá hvað það verður gaman :) Það verða góðir endurfundir á laugardaginn, Stine danska vinkona mín ætlar að koma líka. Sú sem var með mér á íslandi.

Dagskráin lítur vel út, vorum að gera auglýsingu í gær um útihátið á kagsaa kolleginu :)
Byrjað verður með Tuborg open blakmóti kl 14, glæsileg verðlaun í boði :) Svo eru seldar pylsur, gos, bjór og poppkorn, hoppukastali og andlitsmáling fyrir börnin. Svo um kvöldið, verður drukkið trallað og sungið, ásamt því að allir grilla saman ;)

Nei það er ekkert slæmt að búa á kagsaa ;)

Jæja núna eru allir hættir að nenna að lesa þessa vitleisu, það er annahvort eða hjá mér hehehehheheh!!!!!!!!

Ég er búin að henda inn myndum frá Íslandi og ætla að fara að redda hróaskeldumyndunum :)

kram til ykkar allra ;) Rakel

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 20:04:54 / rakelosk

Sumarið komið jessss

Ohh hvað það er æðislegt að sumarið er að detta í garð :)

Ég er ekki enþá búin að fá nýja tölvu, en það er eitthvað að gerast, var að fá bréf frá tryggingunum, þetta er ekkert búið að taka langann tíma hehe........... hún eiðinlagðist 1.febrúar :)

Það er allt að gerast, gott að vera komin aftur til dk, sérstaklega heim til Bjarka, Bono og Bensa,..............hey ja 3 B, guð alveg í nýjustu tísku hehe.

Hnéið alveg að fara að komast í lag, seinna mátti það ekki vera, er byrjuð að æfa og svona núna.....................en enginn fótbolti í sumar :( Það er búið að vera rosalega gott verður seinustu daga, ég er bara orðin brún og sæt, svei mér þá :)

Mig hlakkar bara mikið til sumarsins, fá alla gestina til mín og drekka bjór út í sólinni heheh............. það er alltaf jafn mikið djamm hér á kolleginu, það var löng helgi, þar að segja varð partý heima hjá okkur miðvikudag og fimmtudag.............helvíti  var það nú hressandi :)

Día ég sá kommentið, fín hugmynd hehehhe.................Laugarvatn hmmm veit ekki alveg, en húsið hljómaði vel ;)

Ég hef ekkert að segja, enda ætla ég bara að hætta núna. Reyni að henda inn myndum þegar að ég fæ nýja tölvu ;)

Sakna ykkar allra á íslandi, takk fyrir frábæra gestrisni......þegar ég var þar í 6 vikur, alveg æðilslegur tími!!!!!!!!!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 12:12:01 / rakelosk

Afsakið biðina....talvan mín er ÓNÝT :(

Já talvan mín er ónýt.............vinkona mín hellti óvart heilu glasi af hvítvíni yfir hana, og tryggingarnar eru bara hægfara. Er ekkert búin að heyra neitt. Vona að ég fái einhvern pening frá tryggingunum þar sem við erum enþá að borga tölvuna sem er ónýtt.... er þetta ekki bara týpiskt ég hehehe......

Ég er búin að gera margt ansi skemmtilegt á þessu ári, þótt að það sé ekki liðið mikið af því. Er þar á meðal búin að fara til Prag með bekknum, og skoða Tékkiskar stofnanir, þar á meðal leikskóla og svona heimili fyrir fatlaða............já það má segja að það sé svoldið mikill munur á milli landa :)
Ferðin var í alla staði bein og hrein snilld..........ódýr bjór og skemmtilegt fólk, gæti ekki gerst betra :)

Núna er ég komin til kæra íslands og verð hér til 8.apríl. Reyndar erum við á Sólheimum, plönin breyttust aðeins hjá okkur, þannig að við gerum verkefnið okkar þar. Við gistum á gistiheimilinu sem er bara snilld. Þetta er æðislegt samfélag með æðislegu fólki. Ef allir væru svona góðhjartaðiri í heiminum þá væri ekki erfitt að lifa :) Eins og ég segi hafa allir tekið okkur rosalega vel, og íbúarnir eru glaðir og jákvæðir................við erum semsagt að gera hreyfingarverkefni með íbúana, sem er 2svar í viku. Við erum með 4 mismunandi grúppur sem eru með mismunandi hreyfigetu. Þannig að við þurfum að gera miserfið prógrömm. Við erum að njóta þess til botns og vona að ég verði að vinna með svona í framtíðinni :)

Ég fór í hnéaðgerð þann 14.febrúar, það var tekið 15% af ytri liðþófa og svo voru einhverjar slímhimnur skornar í burtu. Ég fékk að vita að ég gæti hennt hækjunum eftir 2 vikur og þá yrði allt í fínasta lagi. En eins og ég segi.....týpiskt ég þá er ég enþá á hækjum næstum 4 vikum seinna og með heavy verki í hnénu. Þannig að ég fékk að troða mér inn hjá bæklunarlækni..............fór til hans í morgun og það var semsagt búið að blæða inn á hnéið mitt :( Hann tappaði af því bara blóð..........djöfulsins sársauki ojjjjjjjbarasta. En vona bara að þetta gangi betur héðan í frá. Fékk sterkar pillur og beðni fyrir sjúkraþjálfara. Þetta allt með verkjapillum kostaði aðeins 11.000 íslenskar krónur. Helvíti ódýrt bara, reyndar var þetta svo dýrt af því að ég er ekki skráð í landið :$

Við erum búin að gera ýmislegt, búin að fara á snósleða, skoða gullfoss og geysi, fara í perluna, skoða hallgrímskirkju og svo videre :)

Planið er kanski að kíkja vestur til ömmu og afa um páskana í nokkra daga............... Svo bara vera fyrir austan í kyrrðinni.

Jæja núna nenniði öruglega ekki að lesa meira ;) Takk fyrir kommentin frá síðast.
Sakna elsku Bjarka míns :( Og Bryndís ef þú lest þetta, þá verðum við að hittast á Selfossi.................ég er nú rétt hjá þér :)

knus og saknaðar kram til ykkar allra, myndirnar koma síðar. Á ekki tölvu til að setja nýju myndirar inn hehe

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 11:48:00 / rakelosk

Hvað hefur gerst hjá mér seinustu mánuði...........já það er spurning :)

Ég er svo vinsæl manneskja að ég hef aldrei tíma til að fara á netið :)

Nei nei........ég reyni að kíkja á e-mailið mitt inn á milli, stundum þarf ég að eyða 50 mailum ég er svo löt að fara í tölvuna.

Íslandsferðin var alveg æðisleg í alla staði, góð tilbreyting að koma svona lengi :) Eða í 14 daga, það er lengi í okkar augum. En þetta er allt í lagi elsku vinir, því að Rakel er að fara að koma til íslands í 6 vikur :) Ég er að fara að gera verkefni með 2 bekkjarfélögum mínum, sem heita Bo og Stine.

Þetta eru semsagt þau..........við erum að fara að gera verkefni á heilsuhælinu í hveragerði, ásamt einhverju öðru sem er ekki komið alveg á hreint. Planið er að fá kennara í heimsókn og skoða ýmsar stofnanir, svo á bara að skoða ísland. Vonumst til að geta fengið lánaðan bíl og keyra um :) Ég hlakka til, en það verður erftitt að vera án Bjarka í 6 vkikur omygood.

Er ekki sagt að fjarlægðin geri fjöllin blá, það verður erftitt en öruglega þroskandi og gaman :)

Hann hefur gott að því að vera aðeins án mín strákurinn, ath hvernig er að sjá um allt einn hehe!!! Nýjustu fréttir er að við erum búin að fá nýjann hvolp, sem er sonur Bono´s. Hann er alveg æðislegur, reyndar búin að vera lasinn í 2 daga og ekkert viljað borða :( Ef hann borðar ekkert i dag, þá er það dýralæknir á morgun sko!!!

Það koma myndir inn á þegar ég fæ myndavélina mína, ég gleymdi henni á íslandi :( Ég er svoooo mikill sauður stundum ;) En ég var að henda inn myndum núna af klikkuðu fjölskyldunni minni sem kom til dk í desember. Skemmtilegar myndir þar á ferð, þær eru hér til vinstri :)

Ég var bara róleg í gær, aldrei þessu vant. Var að passa Alexander og Patrek 5ára tvíbura. Sem Hannes og Ólöf eiga, þeir gistu hjá mér í nótt rosalega huggulegt :) Er að spá í að fara í rætkina og gera eitthvað skemmtilegt í dag.

Góða helgi elskurnar mínar hilsen Rakel


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 10:54:31 / rakelosk

vona ad tid getid lesid tetta, er i skolanum og skrifa a døsku lyklarbodi :)

Ja ætli eg hafi ekki bara skellt mer upp i tølvuherbergi og akvad ad blogga adeins, um lifid og tilveruna :)

 Tad eru bradum ad koma jol, mer finst tad alger gedveiki, tar sem eg er ekki tilbuin, er i skolanum til 21.desember og fer til islands 22.desember :)

 En annars allt gott ad fretta, Día frænka kom um daginn med Ingvar Jøkul litla frænda minn. Hann er algert ædi sko...........ekki erfidir gestir tarna a ferd :) Tad var hygged, bordad og farid i budir :) A eftir ad henda inn nyjustu myndunum minum..............

Annars er bara brjalad ad gera hja mer.......hmmm eins og vanarlega. Hef reyndar ekkert haft tima til ad koma heim og gera ekki neitt, t.d. eins og fara a msn og svona.....eg sakna tess!!

Hef verid ad vinna eftir skola, Rakelin er byrjud ad vinna a leikskola med skolanum. Tad er reyndar bara rosalega fint sko, er reyndar ad vinna a fristundarheimili lika!!!

Ja ætli madur verdi ekki ad reyna ad tena sma peninga fyrir jolagjøfunum :) Svo er tad skolinn, eg tori nu varla ad segja hvad eg er ad gera i skolanum nuna.......vid erum buin ad nota 3.vikur, i ad setja upp leiksyningu fyrir børn a aldrinum 6-10år. Og vitid tid hvad.... tetta er helvitis vinna, mala og gera leikmynd.....æfa og æfa, svo fa allt til ad funkera :) Vid vorum ad setja fyristu syninguna upp adan, rosa gaman. Tetta er jolaleikrit sem fjallar um dreng sem hefur tynt jolaandanum..........hann getur ekki fundid jolagledina ...........eg held ad eg segi ekki meira....nema ad vid sømdum tetta sjalf, med 4 løgum og mega findid muhahhahah!! Set inn myndir seinna :)

Tad sidasta sem eg ætla ad segja ykkur ad mamma, Kiddi, pabbi og Bjørk eru ad koma til køben a morgun......jessssss eg hlakka til :) 

Jæja tetta var nu ekkert rosalega spennandi blogg........en eg bloggadi alla vega hihih

Gledileg jol allir saman!!! 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 18:27:48 / rakelosk

Hvað er að gerast.............bara blogga í sömu viku næstum því ;)

Aldrei þessu vant, þá er ég ekki með neitt planað um helgina.........ég segi nú bara jessssss!!

Er bara búin að vera að dunda mér, fór í ræktina..............hehemmm já maður er að reyna að koma sér í kjólinn fyrir jólin ;) Svo fóru ég og Eva á kaffihús, rooosalega huggó!!

Ég er með svona lista, söng og tungumála vikur í skólanum. Námið skiftist ekki upp í fög, það skiftist upp í forløb, sem þíðir tímabil held ég, hmmmm er samt ekki viss!!! Alla vega erum við búin að vera í sálfræði, heimsspeki og uppeldisfræði í nokkrar vikur......svo gerum við ritgerð og verkefni og þá er það búið. Svo vorum við í naturforlöb.........þar vorum við að læra allt um náttúruna, og hvernig maður getur notar náttúruna í náminu. Þar að segja ef við erum að vinna með börn, hvernig maður getur gert alskonar verkefni og svona með börnunum í skóginum. Svo erum við í þessu kreativ vikum núna, erum búin að læra um tónlist, leiklist og listmálun. Ég er t.d búin að gera bara alveg ágætt listarverk, aldrei að vita nema ég skelli mynd af því seinna ;) Erum að fara að gera leikrit núna fyrir aldurshópinn 6-10ára, það á að fjalla um eitthvað sem hefur meiningu fyrir þennann aldurshóp og að þau geta lært á því að horfa á það! Rosa nýtt fyrir mér að gera eitthvað svona, en við verðum að læra drama og allt þetta bull, að fara yfir strikið með sinn eigin persónuleika og hvað það gerir fyrir þinn persónuleika í framtíðinni. Blablablabla...........skal hætta þessu núna!!!!!!!!!!

En helvíti er nú erfitt að þýða þetta yfir á íslensku, ég er alveg lost!!! Erum einmitt að fara að skrifa bréf til íslenkrar stofnunar á dönsku. Sem lýsir hvað við gerum og hvert okkar markmið er..........erum þrjú að gera það verkefni. Ég þarf að þýða það yfir á íslensku svo að þau geti lesið það, ég kvíð bara fyrir sko. Ég er hræðileg að þýða yfir á íslensku, og eins og þið sjáið er ég ekki best í stafsetningu :haha:

Jæja ætla að fara að huga að matnum, ætli ég opni ekki eina rauðvín með honun....svona til að að fá smá hita í kynnarnar ;)

Farvel alle sammen og god weekend :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 15:30:19 / rakelosk

Jólabjórinn kom um helgina!!!!

Og ég segi bara nammi nammiiiiiiii................

Samt allt gott að frétta, var í London um daginn hjá henni frænku minni, það var alveg æðsilegt!

Þau búa í alveg rosalega flottri íbúð rétt hjá victoria station, frekar miðsvæðis :)

Við byrjuðum á föstudeginum að versla, kláruðum það bara á einum degi.......nenntum ekki að eyða öllum tímanum okkar í búðum. Fórum svo í leikhús um kvöldið, held að sýningin heitir We will rock you, helvíti skemmtileg og hressandi rokk söng sýning eða leikrit :) 

Á laugardeginum fór ég í bæinn með Rósu á meðan strákarnir voru heima að horfa á fótbolta!! Ég hjálpaði henni aðeins að versla barnaföt og dót :) Svo um kvöldið fórum við út að borða á all helvíti flottann stað sem ég man ekki hvað heitir hehe............en ef þið eruð að fara til London þá endilega hafið samband, þetta var ekki eðlilega góður matur og flottur staður sko :) Ég hendi inn nokkrum myndum hér á eftir :) Við enduðum á smá djammi, reyndar er London versta djammborg sem ég hef á æfi minni kynnst. Það var bókstaflega allt lokað kl 2!!! það er sko ekkert verið að koma heim kl 7 á morgnana eins og á íslandi :) Enduðum með að taka strætó heim og Bjarki prufaði fish and chips............DJÖFULSINS ÓGEÐ ULLLABJAKK!!!

Á sunnudeginum fórum við á fótboltaleik West Ham-Sunderland...........bara fínn leikur sem endaði 3-1 fyrir West Ham :) Svo var bara slakað á heima hjá þeim og haft það gott!!!

Á mánudeginum skoðuðum við svo London alla endilanga..............Helvíti var ég nú þreytt í löppunum omygood!!!

Jæja burt sé frá London þá er allt búið að vera fínt seinustu daga/vikur.

Jólabjórinn kom um helgina, æðislega var hann nú góður. Ég endaði á djammi með bekknum mínum puha!!!!! Svo á laugardaginn var heilsan ekki alveg jafn góð. Var bara í rúminu þangað til ég þurfti að fara að gera mig klára í næsta djamm, ohh hvað það var nú erfitt!!! Kagsaa festin hér á kolleginu, islendingefest eins og við segjum það. Það var rosalega vel heppnað!!! Komst reyndar fyrst í gang einhverntíma um nóttina, var bara eitthvað slöpp sko ;)

Día frænka er að koma í heimsókn þann 14.nóvember, svo eru Bubba tónleikar 16.nóvember! Jess ég hlakka til.............allt að gerast á næstunni. 30.nóv er mamma, Kiddi, Pabbi og Björk að koma til dk með vinnunni hans pabba, þá förum við út að borða með þeim. Svo er ég að fara á uppskeruhátíð hjá fótboltanum 1.des................julefrokost 7.des og 8.des er sektarkassafest hjá fótboltanum. Jesus ég verð bara þreytt á að hugsa um þetta allt.........en ég er í svo góðu formi.....sko drykkjuformi að ég get þetta alveg ;)

Jæja hér koma nokkrar myndir fyrir ykkur!!!

IMG 0702

ég og Rósa á góða staðnum....

IMG 0711

Bjarki og hluti af matnum á borðinu.......takiði eftir gufunni frá einum réttinum!!!

IMG 0760

Hilmar, Rósa, Ævar kærastinn hennar, Bjarki og ég :)

IMG 0786

Nammi hvað mohitoinn var góður þarna!!!

IMG 0798

Ógeðis fiskurinn sem Bjarki fékk, sjáði flikkið...þetta var svona eitt stórt flak. Það endaði með að við gáfum einhverjum rónum matinn okkar :)

IMG 0848

Ég og Bjarki að skoða London baby :)

Fleiri myndir eru undir mine billeder hér til vinstri :)

Hafiði það gott elskurnar mínar :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 17:00:40 / rakelosk

Það er ekki oft sem ég ýti á valmöguleikann skrá nýja færslu :)

En valdi hinsvegar að gera það í dag...................þar sem ég er komin í haustfrí.

Já það er nebbla svoldið lovely, var bara að dunda mér í dag og fór svo að æfa. Fór og prufaði einhvern tíma sem heitir, boldtræning. Það var reyndar bara svolítið erftitt, hélt að þetta væri eitthvað rosa teigju æfingar og svona, en þetta var bara gaman.

Ég er ný komin heim frá Íslandi. Hann faðir minn kæri var að gifta sig, hann giftist henni yndislegu Björk.

100 0457

Ég hef bara sjaldan séð pabba minn svona fínan :) Brúðkaupið var haldið á geisir og vígslan fór fram í Haukardalskirkju. Pínku lítil kirkja sem rúmar 40 manns, það voru bara 23 í brúðkaupinu. Æðislegur matur og flott veisla í alla staði.

Annars var bara rosalega notalegt að koma á klakann, það er það reyndar alltaf. Við héldum partý heima hjá múttu Bjarka á föstudagskveldinu. Það var rosa stuð, enduðum sem betur fer ekki í bænum "Takk fyrir það strákar" ;) Helvíti er hressandi að hitta svona fallegt og skemmtilegt fólk.................. það vantar það nú alveg í dk :)

Svo var bara dúllað sér, farið í sund og heimsótt hina og þessa!!!!

Smá saga um týpiskann dana..........ég þurfti að skjótast í búðina áðan. Og eina bílastæðið sem var opið var bílakjallarinn, ég keyri þar niður og þar er þessi þvílíka röð. Maður má bara keyra til vinstri, en ég sá 2 stæði þarna til hægri. Týpiskur íslendingur hugsa ég bara um að fá stæði.........ég beigi til hægri og legg í eitt af stæðunum, er að drepa á bílnum.....þá kemur kall að bílnum og bendir á að þetta sé einstefna. Ég vinka honum bara og hugsa ekki út í það, neinei hann kemur að bílnum og er eitthvað að röfla. Ég fer út úr bílnum og tala við hann. Þá segir hann "ég er ekki að reyna að vera einhver lögga, en þú mátt ekki leggja svona, hvernig gastu eiginlega beigt til hægri, það stendur að það meigi ekki beigja til hægri" Djöfull langaði mig að segja að honum kæmi þetta ekki við, en ég hélt andlitinu og sagði að ég tæki ábyrgð á þessu sjálf. Þá fór hann að röfla að ég gæti fengið sekt og allt mögulegt. Djöfull var ég pirruð, hvað í anskotanum er fólk að skifta sér af!!!! Ég mundi aldrei nenna að skifta mér af einhverjum öðru fólki niðri bílakjallara. Ekki eins og ég ætlaði mér að keyra á móti umferð!!! FÓLK ER FÍFL ;)

Hér eru nokkrar myndir frá íslandsferðinni,......annars er ég búin að láta restina inn á síðuna hér til hægri!!

 100 0266

Ég, Rán og María frænkur

100 0268

Erla, Erna og moa bestustu vinkonur

100 0421

Elísa stjúpsystir og Valdimar litli brói

100 0462

ég, pabbi með eitthvað upp í munninum og Bjarki

100 0486

Pabbi, Elvar líka litli brói minn, ég og Björk brúður

100 0502

Sæt systkyni :) Sakna þeirra líka mikið :(

100 0578

Ltilu rasgatabollurnar þeirra Steina og Stínu!!!

100 0252

Arnheiður litla systa og ég..........sakna hennar líka mest í heiminum.

Jæja er að fara á kaffihús með Habbý og Hrefnu.....

192 9210

Gömul djammmynd af okkur.........ég, Hrefna og Habbý

 

Og er svo að fara til London og heimsækja Rósu og Ævars á fimmtudaginn, þannig að lífið er bara ljúft í bili ;)

 

DSC04125

Rósa frænka og Ævar

 

Sakna ykkar allra..................knus fra dk


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 09:12:24 / rakelosk

Hér eru gamlar og nýjar myndir af íbúðinni minni :) Ég fann engar rosa góðar myndir af gömlu húsgögnunum mínum en hér kemur þetta.

144 4485

Svona var borðið mitt og sjónvarpsskápurinn til hægri... já svo ég og Steinunn eitthvað að hlæja.

 

160 6041

 Og aftur borðið og gömlu gardínurnar :) og Svenni sæti

198 9885

Það var hilla á veggnum sem við rifum niður og fermingargræjurnar voru jarðaðar, sjónvarpskápnum var hent út og skenkurinn kom í staðinn. Camilla bekkjarsystir í partýi.

 

Picture 137

Aftur sjónvarpskápurinn og Biggi með bjór hahaha

100 9317

Þarna er ég búin að mála borðið og setja nýjar gardínur beautiful!!!! Smukt smukt....

101 9321

Aðeins bjartara yfir íbúðinni, mikill léttir...

101 9319

Skenkurinn sem ég keypti brúnann, pússaði hann svo og málaði......Já þetta var mikil vinna en þess virði.

101 9325

Igen skenkurinn...... og hillan farin. Ekkert á veggnum núna, very gott.

 

 

Ein101 9320 mynd í viðbót...

Þarna hefuru það elsku mamma mín. Nú geturu séð hvað ég var dugleg í sumarfríinu mínu :)

Elska þig mikið!!!!!!!!!!!

Góða helgi allir!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 14:14:53 / rakelosk

Jæja þá er sumarfríið búið :(

Þetta er bara búið að vera undurfagurt frí..................gera ekki neitt er gott fyrir líkamann :)

Ég var bara heima og mála borðið mitt, í bænum á kaffihúsum, gera húsverk, fórum til Aarhus í 30ára afmæli og svo bara dunda mér :)

Reyndar var ég orðin pínku þreytt á að vera heima, þar sem að húsbóndinn var að vinna og ég heima þíddi það að ég gerði ÖLL húsverkin. Þangað til upp á það seinasta þegar ég útskýrði fyrir honum að þótt að ég væri heima þá gæti hann alveg vaskað upp diskinn sinn. Hann lifði bara eins og hann væri með þjón á heimilinu..........það gengur ekki upp á mínu heimili og hana nú ;)

 Ég var á íslandi og fékk sól........á meðan var rigning í dk. Svo kom ég til dk, þá byrjaði sólin að skína. Svo fór ég til Aarhus þar var sól, á meðan það ringdi eld og brennisteini hér í köben. Ég er bara búin að vera ágætlega heppin með sumarið hér :) Eða er á réttum stöðum á réttum tíma. Það ringdi svo mikið þegar við vorum í Aarhus að það ringdi 80mm á 3 klst og það flæddi inn í allla kjallara á kolleginu. Kollegið var eins og ein sundlaug....ojbara.

Við erum með geymslu niðrí kjallara sem flæddi inn í :( Erum að fara í kvöld og tékka á hvað við þurfum að tilkynna tryggingarfélaginu okkar hvað er ónýtt 8| Við erum með slatta niðri geymslu sem má helst ekki skemmast. Ég frétti að það er slatti búið að mygla þarna niðri. Váaá´hvað mig hlakkar til að kíkja þarna niður og fara yfir dótið okkar í kvöld ullabjakk!!!

 

Ég á afmæli í sept og Bjarki í okt...............við erum að spá í að gefa okkur í afmælisgjöf ferð til London á fótboltaleik. Vona að eitthvað verði úr því .............svo erum við að koma til íslands 5okt í mjög stutt stopp. Faðir minn og Björk eru að fara að gifta sig hihiih :) Veislan verður víst haldin á Geysi, er reyndar ekki búin að heyra nógu vel frá honum þannig að ég veit ekki alveg hvernig þetta verður. Ég hlakka svo til ég hlakka alltaf svo tiiiiil ;)

 

Jæja ég ætla að reyna að hlaða inn myndum á næstunni svo að þið getið séð hvað við erum falleg hehehehhehehe..........

 

knus og kram frá köben.


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 15:12:01 / rakelosk

Ertu ekki að gríííínnnnnast!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!1

Ég held að danskir veðurfræðingar, séu lélegustu veðurfræðingar í heimi!!!!!!!!!!!!!!!!

Sko þeir spáður rosalega góðu sumri, og hvað gerðist...........það var steik í apríl, mars og maí. Veðrið var ágætt í juni og svo byrjaði að RIGNA. Og er eiginlega búið að rigna síðan sko. Það var ein vika þegar ég kom heim frá Íslandi sem var rosalega góð, annars er allt á floti.

Ég var að koma heim úr vinnunni, fór reyndar í bæinn með vini mínum honum Daniél, og ég varð svona rosalega blaut....sko út af rignngunni. Var alveg gengumsósa, þar kemur skýfall og svo sól. Svo er Bjarki á fótboltaleik núna í úrhelli..........já eitt svoldið findið, ég var að keyra heim frá Parken þegar ég var búin að keyra Bjarka og Vidda, NEINEI þá bilaði rúðuþurkan bílstjóra megin. Ég keyrði heim í úrhelli og með eina rúðuþurku. Ég keyrði heim eins og Ace Ventura með hausinn út hehehehheheh....

 

Annars er allt að frétta, er bara að vinna núna þangað til á þriðjudag. Þá er ég búin í praktik og búin með ritgerðina mína og þá á ég 20daga í frí. Hver nennir að koma til dk og hanga út með Rakel ???????????????????????? Planið er að mála og pússa borðið okkar, klippa heima og gera ekki neitt. Við erum eiginlega hætt við að kaupa ferð til sólarlanda. Af því að við erum búin að vera að fjárfesta í ýmislegum hlutum fyrir sólarlandarpeningana okkar ;) Bjrarki fékk yamaha heimabíó og dvd.....sem hann er búin að dreyma um seinustu ár. En svo varð úr því að það var keypt, af því að við áttum engann dvd og svo voru það fermingargræjurnar mína sem bara útvarpið virkaði á :) Já það þurfti að gera eitthvað við því þar sem við erum bæði tónlistamanneskjur.

 

Ég ætla ekki að halda upp á afmælið mitt.....í staðin ætlum við að reyna að panta ferð til London og heimsækja Rósu og Ævar.......það á líka að reyna að fá miða á fótboltaleik ef það er mögulegt. Svo komum við kanski til íslands í sept eða oktober þar sem faðir minn og Björk eru búin að tilkynna okkur það að gefa sig saman. Glæsilegt hjá þeim :) Okkur langar nú svoldið að vera viðstödd þar :) Jæja hér fylgja nokkrar vel valdar myndir frá liðnu sumri ;)

sakna ykkar allra!!!! Rakel

 208 0802

Djöfull fer þetta mér vel hehehhehe...

 

209 0952

Litla fjölskyldan á íslandsbryggju að hygge.. Sjáiði Bono hann er svo mikið rasssgat, ok bjarki þú ert líka voða rassgat heh

 

209 0939

Við að töffarast í bænum.

 

209 0991

Ég og besti sætast vinur minn Bo.....

 

210 1048

Flottir gæjar maður... frá vinstri Hannes, Haffi og Bjarki á Pearl Jam tónleikum, í Pearl Jam bolum

 

100 4879

Ég og Jonas...... Töff gleraugu með engu gleri í :)

 

DSC04088

Ég og Rán fallega frænka mín..

 

DSC04099

Elvar brói og Arnheiður systa æi þau eru svo sæt

 

DSC04156

Fallegu mæðgurnar ;)

 

DSC04163

Ég varð að láta þessa mynd, allar myndirnar eru svo venjulegar. Fanst cool að hafa eina spassa mynd. Annars eru allar myndirnar undir íslandsferð brúðkaup og útileiga, hér til vinstri.

 

DSC04189 

Ása, ég og Erla......ohh sakna þeirra sko

 

DSC04209

Pabbi og ég í útilegu......já bjórinn var góður :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 00:12:33 / rakelosk

Fallegt brúðkaup og æðislega ísland :)

Það má bara segja að ég hafi haft það gott hér á klakanum. Það var bara svoldið crasy að gera áður en ég fór til íslands, ég var í ferð með vinnunni og 40 börnum frá mánudegi til fimmtudags. Ég þurfti að fara fyr heim af því að ég þurfti að ná fluginu til íslands............nei nei var það ekki týpiskt ég að fluginu var seinkað til hálf 2 um nóttina!!!!!!!! Þannig að ég þurfti að hanga upp á flugvelli og var ekki komin heim í Stífluselið til múttu fyr en 4 um nóttina, reyndar sótti öll familien mig......mamma, Kiddi og litla systa :) Daginn eftir var haldið vestur á Barðaströnd til ömmu og afa þar sem brúðkaupið- var haldið. Þetta var allt æðilsega fallegt og skemmtilegt, ég og mamma erum svo miklar grenjuskjóður að við grenjuðum og grenjuðum í kirkjunni.....athöfnin var svo krúttleg. Eftir það var haldin heljarinnar veirsla með þvílíkum kræsingum...nammi nammi TAKK FYRIR MIG FRÚ MARÍA OG PALLI!!!!!!! Svo vorum við eina nótt í viðbót það var svo gott veður, kom til Rvk á mánudagskveldinu. Svo er maður bara búin að vera að dunda sér sko, sofa til hádegis, fara í sund, smáralindina í heimsóknir og á kaffihús. Yndælt líf :) Var einmitt að koma af Vegamótum, var að borða með Ernu, Erlu og Ásu.............svo fengum við okkur íslenskan Kjörís í eftirmat nammi nammi. Eitt skal ég segja ykkur að Rakel Ósk Halldórsdóttir er farin í heilsuátak þegar hún kemur aftur til dk......eina sem ég má fá mér er bjór hihihihh það má aldrei vera í bjórbindindi á sumrin sko. Hér hefur veðrið verið alveg frábært, vona að það hafi líka verið gott í dk....... ekki var Bjarki minn heppinn með Hróaskeldu veðrið.........en hann er svo sem öllu vanur. Þeir stóðu sig eins og hetjur þessir "ungu" kallar ;) Planið næstu daga er að borða með mömmu og Elvari á morgun og svo aldrei að vita nema maður hendi sér í bæinn og fái sér eitthvað gott að drekka með Ásu og Ernu!!! Planið er svo að fara í útileigu með fjölskyldu hans pabba um helgina, það verður alveg æðilsegt. Ég held að pabbi minn sé búin að segja mér svona 100 sinnum hvert við séum að fara en ég man aldrei nafnið..........þannig að ég segi alltaf hmmm við erum að fara 1 og 1/2 tíma keyrslu frá Rvk........Ljóska dauðans. Svo kem ég heim kl 6 á mánudagsmorgun og fer að vinna kl 12.........já ég held líka að ég verði þreytt sko. En það verður sko engin miskunn.......ég á að vera búin að gera ritgerð sem ég er ekkii hálfnuð með :( Ég verð að taka mig á þegar ég kem heim. Rumpa þessu af............hendi einhverju niður á 10 síður og þá er það út úr heiminum hehe. Jæja góðu vinir og vandamenn ég elska ykkur öll og líka þig Bjarki. Ég hendi myndum inn þegar ég er komin heim til dk :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 18:46:02 / rakelosk

Hæ hó og jybbi jei og jibby og jei tað er kominn 17 júní

Ja hérna hér...................

Tað er búið að vera gjörsamlega ólíft hér í marga daga, bara rosalegt sumar.

Seinustu helgi fór ég á sumarfest með Street cut og tetta var alveg rosalegt, við fengum ískalt hvítvín með matnum og það varð heitt á 2 mín. Við vorum að kafna. Enda var ég á bolnum allt kveldið. Tað var mega stuð.

Svo er hefð hér í dk að halda 17júni skemmtum á laugardegi, nei nei tað er alltaf rosa dagskrá bæði á amager strönd og á kolleginu. Tá tók hann bara upp á því að hella fötu yfir dk, tað ringdi og ringdi í allann gærdag. Tannig að það varð ekket úr 17júní deginum. Tað var búið að leigja hoppukastala og allar græjur. Síðan stitti upp um kvöldið og við náðum að grilla og borða saman um kveldið með íslenska tónlist í ullarpeysum og gúmmitúttum :) Ég var reyndar edrú eins og oft áður þar sem ég var að keppa í dag. Við töpuðum 2-0 og erum alveg búnar að klúðra tímabilinu. Svona er það, við erum besta liðið á pappírum en stóðum okkur ens og asnar. Reyndar er ég búin að spila vel í sumar og skora þar á meðal 3 skallamörk....helvíti ánægð með það.

Ekki meira um þennann lorte söndag..................á að vera að skrifa ritgerð en sendi yfirmanni mínum sms að ég vildi fresta vejledningstímanum af því að ég meikaði ekki að skrfa í dag :$

En góðu fréttirnar eru:

*Ég er að koma til íslands 6-15 júli, brúðkaup fyrir vestanog útileigu með pabba fjölskyldu :)

*Erla Súsanna besta vinkona mín var að útskrifast sem kennari í gær!! Duglega stelpan mín.

*Rósa frænka mín sem var að flytja til London var að opinbera að hún er ólétt, þessi elska. Hlakka til að sjá flottu bumbuna hennar :)

*Dorte vinkona verður 25ára á föstudaginn.............FEST :)

*Ég er að fara á Justin Timberlake tónleika á laugardaginn og Pearl Jam 26júní. Ekki amalegt það jessssss.

*Planið er að henda sér upp á flugvöll í byrjun ágúst og hoppa i einhverja flugvél til sólarlanda, okkur er alveg sama hvert. Bara slappa af :)

Er ég að gleyma einhverju...........eða einhverjum :!: Þá kommentiði bara :)

 

Annars er allt gott að frétta úr baunaveldi........ég er að hlaða inn myndum. Kíkiði á það hér til vinstri. Fyrstu myndir frá 2007. Ég er orðin alger letingi að blogga og sjá um þetta allt saman. SORRY :|

 

HILSEN RAKEL

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 16:58:37 / rakelosk

Ég fer hreinlega ekki í tölvuna þegar veðrið er svona gott :(

Þess vegna er örguglega ekki gaman að lesa bloggið mitt heheh..........

 Þá er gestagangurinn búinn, við erum búin að vera með gesti seinustu 3 helgar....held svo að við fáum hreinlega ekki fleiri gesti í sumar :$ Mamma og Kiddi komu frá fimtudegi til sunnudags og fengu roooosalega gott veður, svo leið og þau stigu upp í flugvélina fór að rigna hihi. Svo komu mamma og pabbi Bjarka helgina eftir......fóru svo til Svíþjóðar í eina viku og komu svo aftur......váá enda erum við búin að vera út að borða út að borða út að borða, þvílíkur lúxus á manni ;) Svo var steini að fara í gær, hann kíkti eina helgi til vina sinna. Þetta er búið að vera alveg frábært að fá svona gesti, og við gleymdum að láta alla skrifa í gestabókina anskotans :o

 

Það er hreinlega held ég bara komið sumar hérna, rignir reyndar inn á milli en þá er bara svona ógeðslega rakt heitt ojbara ég hata það....þá svitnar maður alveg sama í hverju maður er :)

Ljúft að vera í fríi í dag, svaf til 11 og fór svo á fótboltaleik......svo tóku leiðinlegu verkin við. Þrífa og þvo þvott víií ég elska það út af líifinu NOT. Erum að spá í að fara í bíó í kveld, sjáum hvort að það verði eitthvað úr því.

Bróðir minn ljúfur hann Elvar Már varð 20ára 21.maí.2007 vááa hvað þetta er fljótt að líða úff. TIL HAMINGJU ELSKU BRÓI.....er búin að kaupa gjöf fyrir hann, fæ hana reyndar ekki fyr en á morgun.....svona er að eiga systur í útlöndum, færð alltaf allar gjafir allt of seint hihi

 

Góðu fréttirnar eru að ég er að stefna á að koma til íslands 6 júli, verð reyndar næstum því ekkert í Reykjavík......er að fara í brúðkaup út á landi og svo eina helgi í útileigu með pabba fjölskyldu. Verð í Reykjavík í svona 3 daga mundi ég giska á :)

 

Ég hef bara eiginlega ekkert að segja nema að það var æðislegt að hitta og fá fólk í heimsókn :) Hlakka til næstu heimsókn ;)

Ég ætla að koma myndasíðunni minni í gang fljótlega aftur, og hendi inn nýjum myndum!!!

 

Hafðiði það gott land og þjóð ;) kveðja Rakel


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagsetning
18. mars 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 44693