Lífid og tilveran hjá Rakel í Danaveldi....

29.07.2008 10:12:05 / rakelosk

Hehe ég fæ verðlaun fyrir lélegasta bloggara ever :)

En samt sem áður ákvað ég aðeins að kjafta núna..........

Ég er búin að vera í sumarfríi núna í ágætlega langann tíma, er reyndar að klippa og svona......... þannig að það er engin aföskun að ég sé ekki að blogga, einfalt svar 
"ég nenni því ekki" ég er með facebook og það finst mér nokkuð gaman ;)

En annars er allt gott að frétta hér frá baunaveldi, er búin að njóta sumarsins mjög vel. Reyndar er ég ekki búin að fara neitt nema á Roskilde, djöfulsins snilld var það!!!! Ég elska Roskilde, ætla aldrei að hætta að fara þangað, ef ég kem með krakka einn daginn þá hendi ég honum til íslands á meðan muhahahhaha........

Annars eru mjööög margir óléttir í kringum mig, meðal annars Erla Súsanna sætasta vinkona mín, ég gæti talið lengi upp, en ætla að sleppa því!!!

Ég man ekki hvort að ég sé búin að segja ykkur, að ég er að fara í praktik/vettfangsnám í hálft ár, með social belastede börn.....sem er hmmm svona börn sem geta ekki verið heima hjá foreldrum sínum...... ég verð í húsi sem eru 8 börn, og það er heimilið þeirra. Þar að segja verð ég að vinna vaktavinnu, þetta er bara eins og að vera inn á heimili með 8 börn. Verð að vinna mánudaga frá 13 til 22, fríi alla þriðjudaga, vinn á miðvikud. frá 13 til 22, fimmtudögum 9 til 14, frí alla föst og laug og að vinna anna hvern sunnudag. Phuha þetta var löng ræða.......... 

Annar er ég búin að opna myndasíðuna mína aftur (hér til vinstri) , fyrir þá sem geta ekki skoðað myndir á facebook. Ég ætla að reyna að vera dugleg að setja inn myndir, en lofa engu með bloggið :) 

Verslunarmannarhelgin er í nánd............. og ég verð nú bara að segja að ég er ánægð að vera ekki á íslandi!!!!!!!! Af því að yndislega Erna mín er að koma til mín á föstudaginn, elska hvað hún er dugleg að koma hiihii........... vá hvað það verður gaman :) Það verða góðir endurfundir á laugardaginn, Stine danska vinkona mín ætlar að koma líka. Sú sem var með mér á íslandi.

Dagskráin lítur vel út, vorum að gera auglýsingu í gær um útihátið á kagsaa kolleginu :)
Byrjað verður með Tuborg open blakmóti kl 14, glæsileg verðlaun í boði :) Svo eru seldar pylsur, gos, bjór og poppkorn, hoppukastali og andlitsmáling fyrir börnin. Svo um kvöldið, verður drukkið trallað og sungið, ásamt því að allir grilla saman ;)

Nei það er ekkert slæmt að búa á kagsaa ;)

Jæja núna eru allir hættir að nenna að lesa þessa vitleisu, það er annahvort eða hjá mér hehehehheheh!!!!!!!!

Ég er búin að henda inn myndum frá Íslandi og ætla að fara að redda hróaskeldumyndunum :)

kram til ykkar allra ;) Rakel
Erna Erl skrifaði
jeyyy hlakka til að koma, ég hlýt að eiga heimsóknarmetið í að koma til þín, getur ekki annað verið:)
Erla Súsanna skrifaði
Takk fyrir myndirnar lilli..gaman að skoða ruglmyndir frá Roskilde..spassarrrr..
Góða skemmtun næstu helgi;)
Día skrifaði
Hæ skvísa. Ég setti boðskortið ykkar í póst á föstudaginn... láttu mig vita ef það kemst ekki á leiðarenda á eðlilegum tíma, ég er nefnilega hrædd um að ég hafi sett heimilisfangið vitlaust.....gerði Kagsaa kollegiet...en númerið í línuna fyrir neðan. Fór allt í einu að hugsa þetta eftir á. Vertu í bandi
maria skrifaði
Vá hvað það er gaman að fá smá blogg frá þér loksins! var alveg farin að sakna þess! frábært að þú nýtur þín í Danaveldi... mig langar enþá pínku! en það er ekki hægt strax;)
Vonandi sé ég þig í haust í brúðkaupinu!

Knús

María

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 44732